Hoppa í efni

Í stjórn Eirar

Sigurður Hólm Gunnarsson | 08.09.2005

Valdafíkn mín er engum takmörkum háð. Ég er búinn að búa á Akureyri í um tvær vikur og er strax búinn að troða mér í stjórn norðlenskra félagasamtaka. Í gær var ég kosinn í stjórn Eirar, félags heilbrigðisfræðinema við Háskólann á Akureyri. Reyndar fékk ég rússneska kosningu, enda bauð sig enginn annar fram. Það er kannski ofsögum sagt að ég hafi boðið mig fram. Réttar er að segja að ég hafi verið boðinn fram. Ég þorði bara ekki að segja nei. Hver getur sagt nei við húsfylli af kvenmönnum? Augljóslega ekki ég! Ekki er ég samt að kvarta, þetta verður örugglega mjög gaman.

Skoða 1 athugasemdFela athugasemdir
  1. Brynjólfur Þór 9. september 2005

    Gat nú verið að valdaóði maðurinn ryddist fram á sviðið innan skamms tíma frá því hann flytti til Akureyrar, merkasta sveitarfélagið við Pollinn. Góðar stundir félagi.

Skrifa athugasemd

Netfangið birtist ekki. Málefnaleg umræða er vel þegin.

Nafn, netfang og IP-tala eru vistuð með athugasemdinni. Sjá persónuvernd.

Skrifa athugasemd

Um höfundinn

Sigurður Hólm Gunnarsson

Stofnaði Skoðun árið 1999, þegar vefurinn var meðal fyrstu vefrita á Íslandi. Hér skrifar hann greinar og hugleiðingar um stjórnmál, hugmyndafræði, heimspeki og menningu, í anda frjálslyndis og umburðarlyndis.

Allar greinar höfundar (832) →

Fleiri greinar sem tengjast: Persónulegt og daglegt líf

Stillingar vafrakaka

Nauðsynleg geymsla man valið þitt. Prófílmyndir og utanaðkomandi myndir falla undir virkni; myndbönd og samfélagsmiðlaefni undir markaðssetningu og innfellingar. Independent Analytics mælir heimsóknir á vefþjóninum án vafrakaka og er aðskilið frá þessum flokkum.