Spurningar SHG og svör Félags íslenskra þjóðernissinna

Logo

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson ritstjóri Skoðunar sem stofnað var þann 23. júní 1999.

17/08/2000

17. 8. 2000

(fylgiskjal með greininni Athugasemdir við svar þjóðernissinna frá 17. ágúst 2000 á www.skodun.is) Spurningar SHG sjá: Opið bréf til Félags íslenskra þjóðernissinna *Innan sviga er það sem lesa má út úr svörum þjóðernissinna Svör Félags íslenskra þjóðernissinna sjá: Þjóðernissinnar svara Hættulegt landnám útlendinga og afskipti erlendra aðilla af íslenskum innanríkismálum 1) Þið segist vera á […]

(fylgiskjal með greininni Athugasemdir við svar þjóðernissinna frá 17. ágúst 2000 á www.skodun.is)

Spurningar SHG
sjá: Opið bréf til Félags íslenskra þjóðernissinna

*Innan sviga er það sem lesa má út úr svörum þjóðernissinna Svör Félags íslenskra þjóðernissinna
sjá: Þjóðernissinnar svara

Hættulegt landnám útlendinga og afskipti erlendra aðilla af íslenskum innanríkismálum
1) Þið segist vera á móti landnámi útlendinga af öðrum en evrópskum uppruna hér á landi. Hvers vegna skil ég ekki. Teljið þið að manneskjur frá öðrum heimshlutum en Evrópu séu verri en aðrar manneskjur? (já)* Er það menning, háttarlag eða litarhaft þeirra sem angrar ykkur? (háttarlag þeirra)


Ef það er menning útlendinga sem fer í taugarnar á ykkur, hvers vegna berjist þið þá ekki sérstaklega gegn „óæskilegri menningu“ og útskýrið það fyrir okkur menningasnauðum og illa þenkjandi almúganum hvaða menning telst æskileg og hver ekki? (ÓSVARAÐ) Hví berjist þið ekki fyrir því að allir þeir sem fá landvistarleyfi á Íslandi séu kristnir, skráðir í þjóðkirkjuna, borði skyr og sviðakjamma og telji landbúnað og sjómennsku mestar og bestar allra atvinnugreina? (ÓSVARAÐ) Þannig væri kannski hægt að tryggja stöðu „íslenskrar menningar“.

Ef þið teljið að háttarlag óevrópskra útlendinga sé annað og verra en hvítra Evrópubúa þá hafið þið nærri því að hálfu leiti rétt fyrir ykkur. Þeir sem hafa búið við önnur skilyrði en Íslendingar hljóta að hegða sér að sumu leiti öðruvísi en Íslendingar. Seint verður þó hægt að fullyrða að allar eða flestar þær manneskjur sem eiga uppruna sinn utan Evrópu séu verra fólk en annað. Eða getið þið kannski fullyrt það? (já) Ef svo er þá er ég tilbúinn að heyra þá fullyrðingu ykkar og rökstuðning fyrir henni. (ENGINN RÖKSTUÐNINGUR)

Ef það er einungis litarhaftið sem þið óttist viljið þið þá ekki banna sólbaðsstofur líka? (nei) Þær gera hvíta menn brúna auk þess sem þær geta valdið krabbameini. Ég veit reyndar að þið óttist „blöndun kynstofna“ en meira um þá hræðilegu ógn síðar.

1) Hvað varðar útlendinga af öðrum en evrópskum uppruna er það nær eingöngu vel skrásett háttalag þeirra hvar sem þeir drepa niður fæti sem „angrar okkur.“ Vonum við að þeir hljóti að vera búnir að fá það mikla útrás fyrir niðurrifshvatir sínar í flestum þjóðfélögum Evrópu að við Íslendingar eigum jafnvel einhverja von um að fá að vera í friði fyrir þessu fólki. Allur áróður sem miðar að því að brjóta niður stolt og sjálfsvitund íslensku þjóðarinnar flokkast undir óæskileg menningaráhrif, því án þessara hluta er Ísland ekkert annað en vinnubúðir fyrir íslenska atvinnurekendur og í kjölfarið fylgir uppgangur sjálfseyðingarsinna eins og þér. Litarhaft manna er okkur ekkert hjartans mál, það skipti engu máli þó Afríku og Asíubúar kæmu allir snjóhvítir úr klórbaði, þeirra innræti og hátterni yrði það sama. Hvítir svikarar við sitt eigið fólk sem hvetja til blöndunar og greiða fyrir ágangi útlendinga er þó líklega eina fólkið sem við hötum.

2) Þið eruð á móti erlendum afskiptum af íslenskum innanríkismálum. Hvað þýðir það? Eru þið semsagt á móti inngöngu í ESB og samstarfi Íslendinga við aðrar þjóðir í heiminum? Þið útskýrið þessa afstöðu ykkar ekkert.

2) Við erum eindregið á móti „þáttöku“ Íslands í ESB vegna þess að það er glæpsamlegt gagnvart íslensku þjóðinni að framselja sjálfsákvörðunarrétt Íslendinga ,og þar með möguleika okkar á að geta mótað okkar eigin framtíð, í hendurnar á einhverjum gerspilltum skrifstofublókum í Brüssel. Þetta er hlutur sem frelsishetja eins og þú ættir jafnvel að skilja.
Verndun íslenskrar menningar og tungumáls

3) Þið viljið „draga úr erlendum áhrifum á íslenskt samfélag“ og þið viljið vernda íslenska tungu. Hvernig og hvers vegna í ósköpunum? (ÓSVARAÐ) Ætlið þið að leggja til að notkun sjónvarps, útvarps og internetsins (ég meina alnetsins) verði bönnuð eða verði settar strangar hömlur? (ÓSVARAÐ) Spaugstofan inn, Húsið á sléttunni út? Það er auðvitað ómögulegt að koma í veg fyrir erlend áhrif á íslenskt þjóðfélag án þess að stofna til einræðisríkis. Hvers vegna eru þið á móti erlendri menningu? (innantómt kjaftæði, engum til góðs) Er hún verri en íslensk? (ekki svarað beint) Er fólki ekki fullfært um og frjálst að meta það sjálft hvaða menningu það vill stunda? (ÓSVARAÐ) Er öll óíslensk menning svo hættuleg að það verður að koma í veg fyrir hana? (ÓSVARAÐ) Viljið þið banna Mozart, MTV, Prins Póló, MacDonalds og körfubolta svo eitthvað sé nefnt? (ÓSVARAÐ) Hvaða menning er íslensk og hvaða menning er ekki íslensk. (ÓSVARAÐ) Íslendingar voru upphaflega flestir ásatrúar og íslenska sauðkindin er ættuð frá Afganistan en ekki Íslandi (eða Noregi). Burt með me, me og kirkjuna? (ÓSVARAÐ) Gerið þið ykkur ekki grein fyrir því að nær öll sú menning sem Íslendingar iðka í dag er upprunnin frá útlöndum? (ÓSVARAÐ) Hvernig í ósköpunum skilgreinið þið annars hvað er íslensk menning og hverjir eru þið að dæma um það hvaða menningu Íslendingar stunda? (ÓSVARAÐ)

3) Við höfum svarað þessari spurningu að mestu leyti í lið 1 en það vefst dálítið fyrir okkur hvers vegna er verið að draga ríkisstofnun eins og kirkjuna inn í umræðuna þar sem við erum ekki ennþá forsvarar fyrir ríkið. Þar að auki held ég að innantómt kjaftæði eins og tilraunir til að fá fólk til að halda upp á Valentínusardaginn og þakkargjörðarhátíð Bandaríkjamanna séu hreinlega engum til góðs en þetta er hvað yfirgengilegasta dæmið um hvað sleikjuháttur fólks gagnvart útlendingum getur gengið langt. Við getum jafnvel átt von á því í framtíðinni að þurfa að halda upp á Purim og fara með Kol Nidre fyrst við erum komin með gyðing inn á Bessastaði.

4) Þið hafið greinilega áhyggjur af íslenskri tungu. Þið óttist að íslenskan muni taka breytingum í framtíðinni og þar hafið þið svo sannarlega rétt fyrir ykkur. Þróun tungmálsins er eðlilegasti hlutur í heimi og ekkert er sjálfsagðara. Grátið þið í svefni yfir því að nútíma Breiðhyltingur talar ekki og skrifar ekki nákvæmlega eins og Gísli Súrsson gerði hér á árum áður? Nei, ég hélt ekki. Þeir sem eru þeirrar skoðunar að íslensk tunga sé frábær og fullkomin í núverandi mynd og eigi að haldast eins og hún er í dag um ókomna framtíð, skilja ekki eðli og tilgang tungumála. Hvernig skilgreinið þið annars íslenska tungu? (ÓSVARAÐ) Hvernig ætlið þið að viðhalda henni? (ÓSVARAÐ)

4) Ef það á að teljast einhver dragbítur á okkar málstað að vilja viðhalda íslenskunni þá segir það allt sem segja þarf um þá svartnættistíma sem við erum að upplifa. Það er svo sjálfsagt mál að á Íslandi tali Íslendingar sína íslensku að ekki þarf að ræða þetta. Þeir sem eru eitthvað ósáttir við íslensku eru best geymdir einhversstaðar annarsstaðar. Það er sjálfsagður hlutur að í skólum landins sé hlúð að móðurmálskennslu barna og ætti að efla það nám til muna, íslenskan er mjög litskrúðugt og blæbrigðaríkt mál sem væri synd og skömm að glopra niður í einhverju hugsunarleysi. Það verður kannski það næsta sem þú og þínir líkar takið uppá, að krefjast þess að hér verði eingöngu töluð enska til að gera innflytjendum lífið léttara?

Verndun „kynstofns íslensku þjóðarinnar“
5) Þið eruð augljóslega í hópi þeirra sem teljið að blöndun kynstofna sé af hinu slæma. Teljið þið að hvíti kynstofninn sé í einhverri hættu ef fólki af öðrum kynstofnum verður hleypt áfram til landsins? (ÓSVARAÐ) Hvers vegna? (ÓSVARAÐ) Vissuð þið að hinn svokallaði hvíti kynstofn er hvorki „hreinn“ né „upprunalegur“? (ÓSVARAÐ) Þeir kynstofnar sem til eru í dag eru einfaldlega afleiðing blöndunnar og langrar þróunar. Þið talið oft um að hver kynstofn hafi kosti og galla, séreinkenni sem beri að vernda. Hverjir eru kostirnir og gallarnir við okkur hvítingjana? (kostir: sköpunargáfa og atorka, gallar: umburðarlyndi.) Er það ekki val einstaklinganna sjálfra að velja hvort blöndun eigi sér stað eða ekki? Hverjir eru þið til að banna mönnum að eignast afkvæmi með hverjum þeim sem þeir kjósa? (ÓSVARAÐ) Ef blöndun kynstofna verður það mikil að hvíti kynstofninn þurrkast einhvern tíma út, þá er það einfaldlega vegna þess fólk hefur valið svo? (ÓSVARAÐ) Enginn neyðir fólk af ólíkum uppruna að eignast börn saman. Ef þið viljið ómögulega eignast börn með fólki af öðrum kynstofnum þá skuluð þið einfaldlega haga ykkar einkalífi eftir því en láta aðra í friði! Þið hafið nákvæmlega engan rétt til þess að hnýsast í og skipta ykkur af einkalífi annara. Hvað með ættleiðingar? Viljið þið banna hvítu fólki að ættleiða börn af til dæmis afrískum eða asískum uppruna? (ekki á móti því frekar en hundahaldi)

5) Hvítir menn hafa ekki verið leiðandi afl í veröldinni um ótaldar aldir eingöngu fyrir velvilja eða þolinmæði annara kynþátta heldur fyrir sköpunargáfu og atorku sem á sér engan líka í heiminum.
Bara það að hér sé reglulega gengist fyrir sníkjuherferðum til styrktar VANÞRÓUÐUM löndum er ágætis dæmi um þann reginmun sem er á hvítu fólki og öðrum. Helsti galli hvíta mannsins er sá að umburðarlyndi okkar gagnvart öðrum er orðið það mikið að við erum farin að ganga nærri okkar eigin fólki til að fullnægja „mannúðarsjónarmiðum“ fólks sem er ekki í neinum tengslum við uppruna sinn eða veruleikann yfir höfuð. Á meðan meira er barist fyrir ofverndun hvalastofna en framtíð hvíts fólks erum við á algerum villigötum. Hver á að fóðra þessi vanþróuðu lönd ef hvíti maðurinn deyr út, kannski Keiko, Moby Dick og Flipper taki sig saman um það? Ættleiðingum afrískra og asískra barna erum við ekki frekar á móti en hundahaldi.

Fræðsla eða áróður?
6) Þið segjið að eitt af aðal stefnumálum ykkar sé að fræða fólk um stöðuna í innflytjendamálum. Hver er staðan? Já alveg rétt, allstaðar í Evrópu er aukin óánægja með innflytjendur, aukin glæpatíðni og árekstrar á milli þjóðarbrota eru alltaf að eiga sér stað. Teljið þið að slæmur aðbúnaður innflytjenda, ónóg tungumálakennsla, skipulagsleysi stjórnvalda og fordómar innfæddra eigi einhvern hlut að máli? (ÓSVARAÐ) Eða eru óevrópskir útlendingar almennt slæmt fólk? (já) Teljið þið engan möguleika á því að fólk af ólíkum uppruna geti lifað saman í sátt og samlyndi? (ÓSVARAÐ) Er mönnum ómögulegt að meta náunga sinn út frá verðleikum en ekki litarhafti eða uppruna? (ÓSVARAÐ) Hvernig stendur á því að fjöldinn allur af Palestínumönnum á ísraelska vini? (ÓSVARAÐ) Hvernig stendur á því fjölmargir Serbar eru giftir Króötum? (ÓSVARAÐ) Hvers vegna er til fullt af fólki sem þrátt fyrir ríkjandi fordóma eignast vini og elskendur sem er af öðrum kynstofni og alið upp við aðra trú og aðra menningu en það sjálft? (ÓSVARAÐ) Ef dæmi um óeirðir og ofbeldi milli þjóðarbrota út í heimi er óvéfengjanleg sönnun fyrir því að fólk af ólíkum uppruna geti ekki búið saman er þá ofangreint dæmi um ást og umhyggju ekki sönnun fyrir því að ólík þjóðarbrot geta og eiga að búa saman? (ÓSVARAÐ) Er það ekki staðreynd að það eru þjóðernishyggjumenn eins og þið sem beint eða óbeint valda stríðsátökum og öðru ofbeldi um allan heim með áróðri sínum? (ÓSVARAÐ) Bera þjóðernishyggjumenn ekki mikla ábyrgð á mörgum þeim styrjaldarátökum sem eiga og hafa átt sér stað í heiminum? (ÓSVARAÐ)

6) Hugsunarleysi og draumórar alþjóða og frjálshyggjumanna í viðleitni þeirra til að neyða fólk af ólíkum uppruna til að búa saman hafa orsakað öll innflytjendatengd vandamál í heiminum í dag.

Við þjóðernissinnar viljum koma í veg fyrir þessi vandamál sem þið hafið skapað. Hefur ykkur aldrei dottið í hug að það væri lítill grundvöllur eða hljómgrunnur fyrir málstað þjóðernissinna ef þið létuð af þeirri áráttu ykkar að nauðga allra þjóða kvikindum upp á vestræn samfélög?

7) Á upplýsingamiðstöð ykkar á netinu seljið þið boli með áletruninni „Ísland fyrir Íslendinga“. Hvaða fræðslugildi er bak við þetta slagorð? (ÓSVARAÐ, spyrjandinn er fáfróður og þröngsýnn) Ef þið væruð nýbúar hér á landi og mynduð mæta manni eða mönnum í bol merktan Félagi íslenskra þjóðernissinna og með þessa áletrun, hver haldið þið að yrðu viðbrögð ykkar? (ÓSVARAÐ) Eruð þið ekki að viljandi að ögra útlendingum og ýta undir hatur á þeim með sölu á þessum bolum? (jú)

7) Teljum við að fáfræði þína og þröngsýni megi útskýra að einhverju leyti ef þú ert virkilega að leita að fræðslugildi í flíkum manna. Hvað snertir þessa boli þá eru þeir ákveðin viljayfirlýsing og á meðan við göngum í þeim þarf enginn að láta sér detta í hug að við höfum einhverjar ástæður til að leyna skoðunum okkar. Ef að það fer eitthvað fyrir hjartað á innflytjendum að heimamenn vilji hafa landið fyrir sig þá er ekkert nema gott um það að segja.

*Innan sviga er það sem lesa má út úr svörum þjóðernissinna

Deildu