Fjölmiðlafólk framtíðarinnar

Logo

Sigurður Hólm Gunnarsson

Sigurður Hólm Gunnarsson ritstjóri Skoðunar sem stofnað var þann 23. júní 1999.

25/03/2004

25. 3. 2004

Síðustu tvo daga hef ég fengið að taka þátt í fjölmiðlaverkefnum nemenda í Borgarholtsskóla í Grafarvoginum. Hef ég verið boðaður í tvö sjónvarpsviðtöl sem nemendur skólans sjá alfarið um sjálfir í stúdíói sem hefur verið sett upp í einni af kennslustofum skólans. Í fyrra viðtalinu ræddum við um drauga og í því seinna um kristinfræðikennslu […]

Síðustu tvo daga hef ég fengið að taka þátt í fjölmiðlaverkefnum nemenda í Borgarholtsskóla í Grafarvoginum. Hef ég verið boðaður í tvö sjónvarpsviðtöl sem nemendur skólans sjá alfarið um sjálfir í stúdíói sem hefur verið sett upp í einni af kennslustofum skólans. Í fyrra viðtalinu ræddum við um drauga og í því seinna um kristinfræðikennslu í grunnskólum.


Það var virkilega gaman að sjá þetta skemmtilega starf sem fram fer í Borgarholtsskóla. Það liggur við að maður öfundi þessa krakka fyrir að fá að taka þátt í þessu. Ég hefði svo sannarlega valið mér þessa braut hefði hún verið til boða þegar ég var í framhaldsskóla.

Hægt er að fylgjast með starfi þessa unga fólks á vefsíðunni www.infomedia.is.

Deildu